Starfsfólk  |  EN  |  ISL  |    |  

Sumarsýning 2012

 

Mynd nr. 01

Mynd nr. 01

Frá skólaferðalagi Egilsstaðaskóla í byrjun 8. áratugarins(?). Frá vinstri: Sigfús Kristinsson bifreiðarstjóri(?), hjónin Elísabet Svavarsdóttir og Ólafur Guðmundsson skólastjóri, Helgi Halldórsson kennari, óþekktur karlmaður, Berta Túliníus kennari, óþekktur karlmaður. Myndin er úr safni Hólmfríðar Helgadóttur frá Setbergi. Ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 02

Mynd nr. 02

Gestkvæmt á tjaldstæði á Borgarfirði eystra. Yfir vaka Dyrfjöll. Mynd úr safni vikublaðsins Austra. Tökuár óvisst og ljósmyndari óþekktur.
Mynd nr. 03

Mynd nr. 03

Á djasstónleikum í Valaskjálf. Talið frá vinstri: Vopnfirðingarnir Jóhann Róbertsson og Kristján Magnússon. Þriðji maður er Jörundur Ragnarsson. Myndina tók Anna Ingólfsdóttir á Djasshátíð Egilsstaða árið 1995.
Mynd nr. 04

Mynd nr. 04

Stjórn Kaupfélags Héraðsbúa fundar á Borgarfirði. Upp á veggnum standa (talið frá vinstri): Steindór Magnússon, Ingimar Sveinsson, Hrafnkell Björgvinsson, Þorsteinn Sveinsson, Aðalsteinn Jónsson, Bragi Hallgrímsson. Fyrir neðan vegginn standa (talið frá vinstri): Sigursteinn Jóhannsson, Jón Júlíusson og Sigurður Baldursson. Myndin er frá árinu 1984. Hún er úr myndasafni Austra, ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 05

Mynd nr. 05

Smábátar við hafnarbakkann á Borgarfirði, í baksýn Geitfell og Svartfell. Myndin er frá árinu 1984. Hún er úr myndasafni Austra, ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 06

Mynd nr. 06

Tveir á tali. Frá vinstri: Steinþór Magnússon stjórnarmaður KHB og Arngrímur Magnússon útibússtjóri KHB á Borgarfirði. Myndin er úr myndasafni Austra frá árinu 1984, ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 07

Mynd nr. 07

Beinakerling á Smjörvatnsheiði. Kannski sú sem Árni í Múla skaut að vísunni: Enn sá heiðar andskoti/ ekki strá né kvikindi/ en hundrað milljón helvíti/ af hnullungum og stórgrýti. Myndin kom frá Stefaníu Hrafnkelsdóttur, Hallfreðarstaðahjáleigu. Tökuár óvisst.
Mynd nr. 08

Mynd nr. 08

Málin rædd yfir kaffibolla. Frá vinstri: Eiríkur Eiríksson frá Dagverðargerði, Þráinn Jónsson veitingamaður, Helgi Gíslason, nú framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, Jónas Einarsson afgreiðslumaður á Egilsstaðaflugvelli og Þórarinn Pálsson framkvæmdastjóri Plastiðjunnar Yls. Myndin er tekin snemma á 8. áratug 20. aldar. Gefandi er Helgi Gíslason. Myndin er úr safni móður hans, Kristbjargar Rafnsdóttur, og tók hún líklega myndina.
Mynd nr. 09

Mynd nr. 09

Þrír peyjar á stuttbuxum. Aftan á myndinni sem tekin er á Seyðisfirði standa nöfnin Jói, Sveinn og Ingvi. Full nöfn peyjanna eru óþekkt. Myndina tók Vilbergur Sveinbjörnsson í kringum miðja 20. öld.
Mynd nr. 11

Mynd nr. 11

Konungur öræfanna falinn í valinn. Veiðimaðurinn er Jónas Jóhannsson á Egilsstöðum. Myndina tók Sigurður Aðalsteinsson hreindýraeftirlitsmaður sumarið 1994.
Mynd nr. 10

Mynd nr. 10

Á hreindýraveiðum á Vesturöræfum. Seyðfirðingurinn Jóhann Hansson hefur fellt myndarlegan tarf. Myndina tók Sigurður Aðalsteinsson hreindýraeftirlitsmaður sumarið 1997.
Mynd nr. 12

Mynd nr. 12

Sex prúðbúnar húsfreyjur úr Helgustaðahreppi á ferðalagi á Laugum sumarið 1953. Frá vinstri: Steinunn Jónsdóttir, Ólöf Stefánsdóttir, Guðný Stefánsdóttir, Eygerður Beck, Jónína Jónsdóttir, Sigurborg Sæmundsdóttir. Myndina tók Guðrún Jóhannesdóttir ljósmóðir á Eskifirði.
Mynd nr. 13

Mynd nr. 13

Myndin sýnir unga heimasætu á Eskifirði, Hildi Valdimarsdóttu. Klæðnaðurinn er dæmigerður fyrir unga telpu um miðja síðustu öld. Myndina tók Guðrún Jóhannesdóttir, ljósmóðir á Eskifirði árið 1953
Mynd nr. 14

Mynd nr. 14

Elín Hrönn Jónsdóttir á Eskifirði leiðir litla bróður sinn, Þorstein Snorra Jónsson. Myndina tók Guðrún Jóhannesdóttir ljósmóðir á Eskifirði árið 1953.
Mynd nr. 15

Mynd nr. 15

Þrír sjómenn frá Eskifirði. Frá vinstri: Kristinn Karlsson, Kjartan Björgvinsson og Aðalsteinn Valdimarsson. Myndina tók Guðrún Jóhannesdóttir ljósmóðir á Eskifirði árið 1953.
Mynd nr. 16

Mynd nr. 16

Síldarævintýrið á Seyðisfirði í fullum gangi snemma á 7. áratug 20. aldar. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr safni Einars Vilhjálmssonar. Ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 17

Mynd nr. 17

Síldarsöltun á Seyðisfirði snemma á 7. áratug 20. aldar. Við bryggjuna bíða bátar löndunar. Handan fjarðar sést til Vestdalseyrar og Vestdals. Myndin er úr safni Einars Vilhjálmssonar. Ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 18

Mynd nr. 18

Síldarsöltun hjá Ströndinni á Seyðisfirði. Lokið hefur verið við að salta í tunnu númer tuttugu þúsund og eitt. Síldarstúlkurnar fagna. Sumar eru með rúllur í hárinu. Líklega var slegið upp balli um kvöldið. Myndin er úr safni Einars Vilhjálmssonar. Ljósmyndari óþekktur.
Mynd nr. 19

Mynd nr. 19

Kristmundur Bjarnason við vinnu sína í skyrgerðinni hjá Mjólkurstöð KHB. Í dyrum sést í bakið á Steinþóri Magnússyni. Myndin er úr myndasafni Austra og er tekin árið 1984.
Mynd nr. 20

Mynd nr. 20

Guðmundur R. Jóhannsson tók margar skemmtilegar andlitsmyndir af Héraðsbúum snemma á 7. áratug 20. aldar, þegar hann vann hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Hér gefur að líta Jóhann Stefánsson, trésmið frá Merki á Jökuldal, sem betur er þekktur sem Jói snikk.
Mynd nr. 21

Mynd nr. 21

Hans Vollertsen var kennari á Alþýðuskólanum á Eiðum um skeið og tók þá myndir af nemendum til að birta í Árbókinni. Hér gefur að líta skólapiltinn Svein Ara Guðjónsson frá Breiðdalsvík. Myndin er frá árinu 1984.
Mynd nr. 22

Mynd nr. 22

Hátíðargestir á 17. júní samkomu á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum á aldamótaárinu 2000. Frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Jóhanna Illugadóttir, Sveinn Jónsson. Aftar sitja Sigurborg Gísladóttir, Ingólfur Arnarson og systurnar Fjóla og Ingibjörg Kristjánsdætur. Fremst til hægri er Soffía Ingvarsdóttir. Myndina tók Anna Ingólfsdóttir.
Mynd nr. 23

Mynd nr. 23

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Sigfús Árnason, slökkviliðsstjóri og frumbyggi í Egilsstaðaþorpi, ræðast við á 60 ára afmæli Egilsstaða sumarið 1997. Myndina tók Sigurður Aðalsteinsson.
Mynd nr. 24

Mynd nr. 24

Stefanía Eyjólfsdóttir á Eskifirði í fermingarkjól. Myndin er tekin árið 1953. Þá fermdust stúlkur enn í síðum hvítum kjólum sem fermingarkyrtlarnir leystu síðar af hólmi. Myndin er úr safni Guðrúnar Jóhannesdóttur ljósmóður.
Mynd nr. 25

Mynd nr. 25

Systurnar Ingileif Sveina og Halldóra Andrésdætur frá Fagradal í Vopnafirði. Myndin er tekin í kringum miðja 6. áratug 20. aldar. Myndin er úr safni Oddnýjar Þorsteinsdóttur frá Hofströnd. Ljósmyndari er óþekktur.
Mynd nr. 26

Mynd nr. 26

Tveir á tali. Stefán Pálsson málari á Egilstöðum og Þorsteinn Snædal bóndi á Skjöldólfsstöðum. Myndina tók Sigurður Aðalsteinsson á málverkasýningu Stórvals á Vopnafirði árið 1994.
Mynd nr. 27

Mynd nr. 27

Þrjár hressar konur af Héraði á skemmtun í Brúarási árið 1997. Björk Sigbjörnsdóttir, Ásgerður Felixdóttir og Birna Sigbjörnsdóttir stilla sér upp fyrir myndatöku. Myndina tók Sigurður Aðalsteinsson.
Mynd nr. 28

Mynd nr. 28

Keppendur um titilinn Ungfrú Austurland 1997. Fremri röð: Sandra Ösp Valdimarsdóttir Egilsstöðum og Guðlaug Kristinsdóttir Eskifirði. Aftari röð: Elín Skúladóttir Neskaupstað, Bryndís Jónsdóttir Höfn, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Egilsstöðum og Þorgerður Þórðardóttir Vopnafirði. Myndina tók Anna Ingólfsdóttir.

Héraðsskjalasafn Austfirðinga

Laufskógar 1, 700 Egilsstaðir

Sími: 471-1417
Tölvupóstur: heraust@heraust.is

Senda fyrirspurn

Héraðsskjalasafn Austfirðinga er byggðasamlag á vegum sveitarfélaga á Austurlandi. Safnið starfar samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn frá árinu 2014 og er sjálfstæð skjalavörslustofnun en lítur faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands. Megin hlutverk safnsins er að taka við skjölum og hafa eftirlit með skjalavörslu aðildarsveitarfélaga sinna og stofnana á þeirra vegum. Í safninu er ágæt aðstaða fyrir fræðiiðkanir.

Öll söfnin í héraðsskjalasafninu - skjalasafnið, ljósmyndasafnið og bókasafnið - stækka ört og luma á margvíslegu efni sem nýst getur við fjölbreyttar rannsóknir, hvort sem þær eru unnar af fræðimönnum, nemum eða öðrum sem kjósa að nýta sér safnkostinn. Margs konar gögn eru í skjalasafninu, þar má t.d. leita upplýsinga um örnefni, landamerki eða um starfsemi félaga sem afhent hafa safninu skjöl sín.

© Héraðsskjalasafn Austfirðinga 1998-2022